Mánudaginn 10 ágúst og þriðjudaginn 11 ágúst n.k. fer fram árleg LEK sveitakeppni golfklúbba.
Í Þorlákshöfn verður keppni eldri hópsins 75 ára og eldri og í Hveragerði fyrir yngri hópinn 65 ára til 74 ára.
Þegar hefur ein æfing farið fram og verður svo æfingarhringur á keppnisvöllunum n.k. föstudag 7 ágúst kl. 12:30 og 12:40. Bílar eru leyfðir.
Þeir sem keppa fyrir hönd Golfklúbbsins Flúðir;
Liðsmenn 65+
Elías Kristjánsson liðsstjóri, Albert Einarsson, Guðlaugur Guðlaugsson, Broddi Kristjánsson, Halldór Karl Ragnarsson og Árni Tómasson.
Liðsmenn 75+
Helgi Guðmundsson liðsstjóri, Guðmundur Guðni Konráðsson, Arnar Jónsson, Jens Þórisson, Jónas Ragnarsson og Jóhann Jóhannsson
BKV. Elías Kr.


