Barna- og unglingakennsla

Golfkennsla í sumar hjá GF

Líkt og undanfarin ár mun GF bjóða upp á ókeypis golfkennslu fyrir 6 til 16 ára börn og unglinga í sumar. Um er að ræða 5 skipti yfir sumarið, allt á laugardögum.

Kennari er Ástráður Sigurðsson, PGA.

Kennt verður milli kl. 9:00 og 11:00 fyrir byrjendur og milli kl. 11:00 og 13:00 fyrir lengra komna.

Dagsetningar kennslu í sumar eru:

30. maí – 6. júní – 27. júní – 11. júlí  og 8. ágúst

Námskeið fyrir börn og unglinga í samstarfi við Hrunamannahrepp

GF býður félagsmönnum að senda ættingja sína (börn,barnabörn, etc.) á golfnámskeið án endurgjalds í sumar. 

Námskeiðið er ætlað 7-14 ára unglingum og stendur yfir frá 7. til 9. júlí nk.

Námskeiðið hefst kl. 9:00 og stendur yfir til kl.12:00.

Námskeiðið hefst með því að Ástráður Sigurðsson golfkennari kennir fyrsta daginn, en seinni tvo dagana munu félagar úr GF leiða kennsluna og spila með unglingunum. 

Hægt er að taka með sér nesti og snæða í golfskálanum í lok hvers tíma, en í hádeginu á fimmtudeginum verður boðið upp á pizzu og gos fyrir alla.

Golfklúbburinn Flúðir

Scroll to Top