Selsvöllur er fallegur. ATH.

Kæru félagar í Golfklúbbnum á Flúðum

Við erum með fallegan golfvöll í eigu margra félagsmanna og höfum náð að halda uppi góðum anda og einstökum golfvelli. Okkur hefur tekist að breyta þessum góða sveitavelli í golfvöll í fremstu röð . Til þess að viðhalda því getur verið gott að rifja upp nokkur atriði sem við viljum hafa í huga á golfvellinum. Góðir golfarar sýna alltaf heiðarleika, kurteisi, hjápsemi og tillitsemi í leik.

• Stundvísi, verum komin á teig 10 mínútum fyrir bókaðan rástíma.

• Sýnum leikmanni á teig virðingu með því að bíða róleg og hafa þögn þannig að leikmaður geti einbeitt sér að sínu höggi.

• Göngum rösklega að okkar bolta og sláum þegar ljóst er að allir eru í öruggri fjarlægð.

• Lögum torfusneppla eða kylfuför eftir högg sem skilja eftir sig far á vellinum.
Ef slegið er úr glompu á að raka eftir að slegið er.

• Notum einungis 3 mínútur að hámarki til að leita að týndum bolta.

• Ef auð braut er fyrir framan okkur og holl að bíða á eftir, hleypum við fram úr.

• Við flöt er golfsettið og golfbíll skilið eftir þannig að sem fljótlegast sé að fara að því og að næsta teig. Á flötinni eru boltaför löguð, ekki gengið í púttlínu annarra og skugginn aldrei yfir púttlínu þess sem á leik. Förum af flötinni um leið og leik er lokið og skráum skorið þegar komið er að næsta teig.

• Skiljum hundana eftir heima.

• Eftir leik þökkum við fyrir leikinn og það má gjarnan fara af flötinni og til hliðar ef næsta holl er að bíða eftir flötinni.

Völlurinn okkar er einstakur og ef við hjálpumst öll að getur hann orðið enn betri og eftirsóttur af kylfingum alls staðar að.

Símanúmer í afgreiðslunni er 4866454 og beini sími Einars rekstarstjóra er 853 6454.

Kveðja,
Stjórn GF

 

Scroll to Top