Vordagur GF – Sumardaginn fyrsta

Sumardaguirnn fyrsti, nú tökum við til hendinni.

Samstaða og fjör á Flúðum, kæru félagsmenn nú styttist í tímabilið sem við höfum öll beðið eftir. Á sumardaginn fyrsta þann 23. apríl ætlum við að gera völlinn okkar og skálann klára fyrir sumarið. Það er ekkert sem hressir góða liðsheild eins og smá vinnugleði og ferskt loft áður en við byrjum að tæta upp grasið með drævernum.

Planið  er einfalt, mæting kl. 10:00 smá spjall og skipulag verka, Guðmundur í vallarnefndinni, Jónas í húsanefndinni og Daníel vallarstjóri munu skipuleggja vinnuna. Smá tiltekt á vellinum, raka fallnar greinar og þess háttar. Hreinsa til í golfskálanum,  laga til í kjallaranum og önnur smærri verkefni.

Gott að taka með sér hrífur, hjólbörur og annað sem ykkur dettur í hug að gæti komið að notum. Við endum svo vinnulotuna í kringum 14:00 með góðri grillveislu. Grillum pylsur og fáum okkur svalandi drykki með. Margar hendur vinna létt verk, því fleiri sem við erum, því fyrr byrjar grillið. Gerum svo ráð fyrir að halda áfram á föstudeginum ef verkefni eru fyrir hendi.

Taktu með þér góða skapið og vinnuhanskana og mættu á Selsvöll. Þetta er kjörið tækifæri til að hitta félagan, ræða sveifluna og plana sumarið í sólinni – þvílík veðurspá þessa daga.

Ottó Leifsson

Formaður 

Rulla till toppen