Að hausti og sumarlokum.
Kæru félagsmenn, takk fyrir gott golfsumar. Veðrið var einstaklega gott í sumar og spilaðir hringir hafa aukist verulega frá sl. ári.
Ég vil þakka öllum sjálfboðaliðum fyrir þeirra framlag, það er ómetanlegt að finna fyrir velvilja frá öllum sem taka þátt í að gera golfvöllinn okkar að skemmtilegum leikvelli.
Allar nefndir eru unnar í sjálfboðavinnu, stærstu nefndirnar eru vallarnefndin, húsanefndin, fjáröflunarnefndin, mótanefndin, kvennanefndin, og kjörnefndin. Ég vil hvetja alla til að gefa sig fram til að starfa í nefndum og vinna að því að gera golfvöllinn okkar að fallegri og betri velli.
Ég vil þakka framkvæmdastjóra, vallarstjóra og öðrum starfsmönnun kærlega fyrir samstarfið í sumar.
Að venju héldum við nokkur golfmót, þar á meðal tvö GSÍ golfmót og voru keppendur mjög ánægðir með völlinn okkar. Stefnt er að því að halda aftur GSÍ mót á næstu árum.
Afmæliskaffi var sunnudaginn 27. júlí og mættu um 150 manns í veisluna í fallegu veðri.
Í næstu viku munu um 80 félagar í klúbbnum halda til Spánar í golfferð, afmælisferð í tilefni af 40 ára afmæli GF. Áfangastaðurinn er Almerimar, þar munum við halda fimmtudagsmótaröðina þann 16. október, 4ra manna Texas scramble. Einnig afmælismót þann 18. október, hefðbundin puktakeppni.
Aðalfundurinn verður haldinn föstudaginn 21. nóvember og samkvæmt lögum félagsins ber að kjósa 2 menn í stjórn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.
Formann skal kjósa til eins árs í senn. Kjörnefnd hefur það hlutverk að tryggja að ávallt sé á næsta aðalfundi framboð til embættis formanns og fulltrúa í stjórn og varastjórn GF.
Ég vil hvetja alla þá sem hafa áhuga á að koma til starfa í stjórn að hafa samband við kjörnefndina eða þá sem sitja í stjórn núna.
Ég mun áfram gefa kost á mér sem formaður stjórnar klúbbsins.
Með golfkveðju
Ottó Leifsson, formaður

