Opna íslenska grænmetismótið 29. ágúst 2026

Opna íslenska grænmetismótið er golfmót þar sem leikin er punktakeppni með hámarksforgjöf (36). Keppt er í þremur flokkum; karla, kvenna og barna (14 ára og yngri – 18 holur). Mercedes Benz EQA árgerð 2027 í verðlaun fyrir holu í höggi á 16 braut. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki. Næst holu á öllum par 3 holum vallarins – 6 talsins Mótsgjaldið er 8.300 kr./fullorðinn. Frítt er fyrir þátttakendur í barnaflokknum! Skráning er í golfbox á www.golf.is Sölufélag garðyrkjumanna er aðalstyrktaraðili mótsins (www.islenskt.is)
Scroll to Top