Kæru félagar – Golfsumarið kallar !!
Það er kitlandi eftirvænting í loftinu. Þótt frostið hafi verið nístandi síðustu vikur er enginn snjór á vellinum, þá skín sólin í gegnum gluggann sem fyllir okkur mikilli eftirvæntingu fyrir komandi golfsumri.
Stjórnin er full tilhlökkunar, þótt vissulega verði eftirsjá af okkar flotta framkvæmdastjóra sem hefur sagt upp störfum eftir frábæra vinnu í mörg ár. Við þökkum honum kærlega fyrir frábært starf á liðnum árum. Hann skilur við okkur í góðri stöðu og nú höldum við ótrauð áfram að gera GF að enn betri stað.
Nýju brautirnar sem við vígðum síðastliðið sumar eiga eftir að njóta sín vel á vellinum í ár. Flatirnar á 15. og 16. braut eru á dásamlegum stað og munu án efa verða okkur öllum til sóma í sumar.
Nú verður látið verða af því, við ætlum að skipta um þakið á skálanum sem hefur strítt okkur með leka í mörg ár. Það verður mikil bót fyrir aðstöðuna okkar. Merkið við hreinsunardagana um páskana og vordaginn í lok apríl, þar sem við munum í samvinnu við vallarstjóra eins og undanfarin ár vinna að því að gera völlinn klárann fyrir opnun. Samstaðan er okkar helsti styrkur.
Reikningar fyrir félagsgjöldunum eru komnir í heimabanka, en til að létta undir höfum við skipt greiðslunni á tvo gjalddaga, í febrúar og mars.
Golfklúbburinn mun vera með bás á golfsýningunni Golf Expo sem verður í Laugardalshöll dagana 7. og 8. mars. Ég hvet ykkur öll til að mæta, skoða nýjustu græjurnar og spjalla við félagana í golfinu.
Að lokum vil ég minna á að Golfklúbburinn Flúðir er Almannaheillafélag og framlög til klúbbsins geta gefið rétt til skattaafsláttar.
Bestu kveðjur
Ottó Leifsson, formaður GF
