Kæru golffélagar og vinir Golfklúbbsins á Flúðum.
Golfsumarið er senn á enda og við lítum til baka yfir viðburðaríkar og mjög svo frábærar golfstundir sumarið 2026. Sumarið hófst með ákveðnum áskorunum, við opnuðum 11 dögum seinna en sumarið 2025, mikið frost í vor hægði á sprettunni og rigningin í júlí reyndi á þolrifin. En völlurinn varð góður og vallarstjórinn og starfsmenn okkar, ásamt vallarnefnd náðu öllu því besta útúr golfvellinum. Samveran og gleðin á pallinum skilaði okkur félagsmönnum og gestum skemmtilegu sumri. Ég hugsa til baka og finn hverning allir blómstruðu þegar á reyndi, sérstaklega á dásamlegum sólskinsdögum í ágúst þegar völlurinn skartaði sínu allra besta.
Reksturinn og umgjörðin hafa gengið nokkuð vel. Nýtt þak er komið á skálann okkar og fyrsti slátturóbótinn mætti til leiks sem markar stórt skref í tæknivæðingu og viðhaldi. Nýr rekstrarstjóri hann Einar, hefur staðið sig vel og haldið utan um starfið af miklum glæsibrag. Völlurinn hefur sjaldan verið betri og spilaðir hringir um þetta leyti eru komnir yfir 14þúsund, á sama tíma árið 2025 voru þeir rétt undir 14þúsund.
Hápunktar sumarsins eru nokkrir. Meistaramótið heppnaðist frábærlega þar sem félagsandinn og keppnisgleðin voru í fyrirrúmi. Íslandsmót GSÍ Golf14 var haldið í júní, mættu þar yfir 100 keppendur. Þá var sérstaklega ánægjulegt að hýsa 14 ára unglingahátíð GSÍ, en framtíðin í íþróttinni er sannarlega björt miðað við þá glæsilegu æsku sem sótti okkur heim þá. Nokkur opin mót voru haldin sem voru vel sótt. Sú nýjung var í Grænmetismótinu að Mercedes Bens bifreið var í vinning fyrir þann sem færi holu í höggi á 16. holu. Því miður þá tókst engum að slá þannig draumahögg.
Ég vil þakka öllum félagsmönnum, sjálfboðaliðum og starfsfólki kærlega fyrir dásamlegar stundir, góða samveru og ómetanlegt framlag á nýliðnu sumri. Hlakka til að sjá ykkur öll hress á næsta tímabili!
Með kveðju og þakklæti,
Ottó Leifsson
Formaður Golfklúbbsins á Flúðum

