IMG_2090

Námskeið og kennsla

GF hefur í gegnum tíðina haldið námskeið fyrir börn og unglinga í góðu samstarfi við Hrunamannahrepp. 

Einnig hafa golfkennarar heimsótt okkur og boðið upp á einkakennslu.

Námskeið fyrir börn og unglinga 2026

Golfkennsla í sumar hjá GF

Líkt og undanfarin ár mun GF bjóða upp á ókeypis golfkennslu fyrir 6 til 16 ára börn og unglinga í sumar. Um er að ræða 5 skipti yfir sumarið, allt á laugardögum.

Kennari er Ástráður Sigurðsson, PGA.

Kennt verður milli kl. 9:00 og 11:00 fyrir byrjendur og milli kl. 11:00 og 13:00 fyrir lengra komna.

Einnig býður Ástráður upp á einkakennslu (fyrir 1-2 í senn, 30 eða 60 mínútur) fyrir þá sem vilja. Yfirleitt er um að ræða kennslu eftir kl. 13:00, þegar námskeiðum dagsins er lokið.

 

Dagsetningar kennslu í sumar eru (laugardagar):

  1. maí – 6. júní – 27. júní – 11. júlí – 8. ágúst

Námskeið fyrir börn og unglinga í samstarfi við Hrunamannahrepp

GF býður félagsmönnum að senda ættingja sína (börn,barnabörn, etc.) á golfnámskeið án endurgjalds í sumar. 

Námskeiðið er ætlað 7-14 ára unglingum og stendur yfir frá 7. til 9. júlí nk.

Námskeiðið hefst hvern dag kl. 9:00 og stendur yfir til kl.12:00.

Námskeiðið hefst með því að Ástráður Sigurðsson golfkennari kennir fyrsta daginn, en seinni þrjá dagana munu félagar úr GF leiða kennsluna og spila með unglingunum. 

Hægt er að taka með sér nesti og snæða í golfskálanum í lok hvers tíma, en í hádeginu á fimmtudeginum verður boðið upp á pizzu og gos fyrir alla.

Hvetjum við ykkur félagsmenn í GF til að nýta ykkur þessi kostaboð.  Ef einhverjir vilja bjóða sig fram til sjálfboðaliðastarfa 7. til 9. júlí væri það vel þegið.

Golfklúbburinn Flúðir

Innan GF er starfandi kvennanefnd sem stendur fyrir ýmsum viðburðum fyrir konur í klúbbnum.

Á sunnudögum eiga konur í GF fasta rástíma frá kl. 13.00, ekki þarf að skrá sig fyrirfram í þessa tíma, aðeins mæta og tilkynna komu.

Ástráður Sigurðsson, golfkennari, verður golfnámskeið fyrir konur í GF, sunnudaginn 31. maí milli kl. 13.00 – 15.00. 

Facebook hópur kvenna innan GF heitir Kvennagolf GF, endilega skoðið síðuna!

Ef þig langar að bætast í hópinn þá endilega skráðu þig í GF með því að senda tölvupóst á netfangið postur@gfgolf.is

Golfkennsla fyrir þá sem vilja einkakennslu verður kynnt hér.

Rulla till toppen