IMG_2090

Rafræn vöktun

Á Selsvelli eru staðsettar eftirlitsmyndavélar vegna rafrænna vöktunar

Hér neðanmáls má finna nánari upplýsingar um tilgang og eðli vöktunarinnar

Upplýsingar vegna notkunar eftirlitsmyndavéla á Selsvelli, Efra-Seli í Hrunamannahreppi

 

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: Golfklúbburinn Flúðir (hér eftir nefndur GF), kt. 440491-2009, Efra-Sel, 846 Flúðir, 486-6454, postur@gfgolf.is

Persónuverndarfulltrúi: Framkv.stj. GF – postur@gfgolf.is

Tilgangur vöktunarinnar: Vöktun vegna innheimtu ógreiddra vallargjalda og almennt eftirlit með umferð kylfinga í þeim tilgangi að farið sé eftir almennum reglum, t.d. varðandi fjölda kylfinga í holli.

Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna GF af öryggis- og eignarvörslu.

Tegundir persónuupplýsinga: Unnið er með myndefni sem verður til við vökunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Viðtakendur: Allt myndefni er aðgengilegt vinnsluaðilanum GF sem hefur umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnfram verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Varðveislutími myndefnis: Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt.“ Sjá að öðru leyti 2. tölul. 2. mgr. 5. gr. og 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Réttindi einstaklinga: Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.

 

Selsvelli, 15. maí 2025

Rulla till toppen